Skátafélagið Kópar

Útilífskóli Kópa

Skátafélagið Kópar býður upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er í skátaheimili Kópa við Digranesveg 79. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Námskeiðin eru fjölbreytt og reynt eftir fremsta megni að hafa ólíka dagskrá í hverri viku. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2009 – 2013.

Námskeiðin eru frá kl. 09.00 – 16.00 og boðið er upp á gæslu á milli 08.00 – 09.00 og kl. 16.00 – 17.00 sem greiða þarf aukalega fyrir. Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana, eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag stútfullan af ævintýrum.

Námskeiðsvikur:

Námskeið 1. 14. – 18. júní (4 dagar v/17. júní)

Námskeið 2. 21. – 25. júní

Námskeið 3. 28. júní – 02. júlí

Námskeið 4. 05. – 09. júlí

Námskeið 5. 12. – 16. júlí

Námskeið 6. 03. – 06. ágúst (4 dagar v/frídags verslunarmanna)

Námskeið 7. 09. – 13. ágúst

Námskeið 8. 16. – 20. ágúst

Námskeiðsgjald er 16.000 kr. en 13.500 kr. fyrir 4 daga viku. Gjald fyrir gæslu er 3.000 kr.

Umsjónarmaður námskeiðanna er Katrín Kemp Stefánsdóttir.

Hægt er að senda tölvupóst á utilifsskoli@kopar.is eða hringja í Skátafélagið Kópa í síma 554-4611 á opnunartíma.

Skráning hefst á Sumardaginn fyrsta 22. apríl og fer fram HÉR

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Blöðruþjófar og bogfimi í Félagsútilegu Kópa

Helgina 16.–18. október fóru rúmlega 90 Kópar á Úlfljótsvatn í hina árlegu félagsútilegu. Félagsútilegan er fyrir alla fálkaskáta og eldri í félaginu og er ákveðinn hápunktur í …

Yfir 700 kílómetrar gengnir fyrir Þrist

Laugardaginn 19. september 2026 fór Áheitaganga Kópa 2026 fram, og það er óhætt að segja að skátarnir hafi lagt sitt af mörkum til skátafélagsins! Hópur skáta á aldrinum 7–20 ára …