Skátafélagið Kópar býður nú upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða viku námskeið.
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 11 ára fædd 2000 til 2004.
Sumarið 2012 eru eftirfaranadi námskeið í boði:
Námskeið 1: 11. júní til 15. júní
Námskeið 2: 18. júní til 22. júní Fullt
Námskeið 3: 25. júní til 29. júní
Námskeið 4: 2. júlí til 6. júlí
Námskeið 5: 9. júlí til 13. júlí
Námskeið 6: 16. júlí til 20. júlí
Almennt
Námskeiðin hefjast klukkan 9 og þeim lýkur klukkan 16:00.
Þátttakendur þurfa að koma klæddir eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana. Eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag.
Þátttökugjöld
Gjald kemur síðar
Systkinaafsláttur er 10%.
Innifalið í verði er öll dagskrá. Þá fá allir þátttakendur viðurkenningu í lok námskeiðs.
Þátttökugjöld skal greiða eigi síðar en á fyrsta degi námskeiðs. Tekið er á móti debet og kreditkortum.
Gæsla utan námskeiðstíma
Boðið er upp á gæslu fyrir og eftir námskeiðin, frá kl. 8 til 17. Tekið er gjald fyrir gæsluna og er það kr. 1.000 fyrir hádegi og kr.1.000 eftir hádegi, fyrir vikuna.
Skráning
Smellið hér til að skrá á námskeiðin - fyrstur kemur fyrstur fær !
Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 554-4611 mán-fim frá 17:00-20:00
eða á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


