Jæja! Nú er vika 5 senn að líða.
Við höfum brallað ýmislegt skemmtilegt í þessari viku, við fórum meðal annars í óvissuferð í Öskjuhlíðina þar sem við fórum í póstaleik og kíktum aðeins við í Perlunni. Á leiðinni til baka fórum við í smá heimsókn til Landnema í Reykjavík og fengum að borða nestið hjá þeim, þar var útilífsskóli í fullum gangi og voru krakkarnir þar að grilla.
Sundferðin var svo í gær og vorum við mjög heppin með veðrið! Sól og bongóblíða allan tímann :)
Við kíktum svo við á Rútstúni og borðuðum hádegisnestið okkar, áður en við kíktum við á Náttúrusafninu.
Í dag ætlum við svo að súrra með krökkunum, en það hefur alltaf verið mjög vinsælt :)
Við ætlum líka að grilla pylsur og sykurpúða og enda svo daginn á rosalegu vatnsstríði ......Þannig það verður ekkert nema stuð í allan dag! :)
Við segjum bara góða helgi og takk fyrir vikuna!
Kveðja
Starfsfólk Útilífsskólans
