Þú ert hér: Forsíða Útilífsskóli Fréttir Fréttir af Útilífsskóla Kópa

Fréttir af Útilífsskóla Kópa

Mánudagur, 04. júlí 2011 12:06


Útilífsskóli Kópa hefur verið í fullum gangi seinustu vikurnar.

Við höfum gert margt skemmtilegt saman meðal annars farið í klifur og sig hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, farið í sund, óvissuferðir, grillað saman pylsur og sykurpúða og farið í vatnsstríð.
Við höfum verið dugleg að heimsækja hin ýmsu söfn. Í seinustu viku var farið í ratleik á Þjóðminjasafni Íslands, í vikunni þar á undan var farið á Árbæjarsafnið og við höfum líka verið dugleg að fara á Náttúrusafnið í Kópavogi.

Nú er farið að síga á seinni helming sumarnámskeiða hjá okkur og enn er laust á öll námskeiðin sem eftir eru!

Við hvetjum krakka á aldrinum 8-11 ára að koma hressandi og skemmtilegt Útilífsnámskeið að hætti skáta í sumar! :)

Kær kveðja

Starfsfólk Útilífsskólans