Skátafélagið Kópar býður nú upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann í annað skipti. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru stangveiði, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða viku námskeið. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 11 ára fædd 2000 til 2003.
Skráning er hafin á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. þarf að koma fram hvað námskeiði er óskað eftir, nafn barnsins og kennitala.
Hér getið þið séð myndir af því hvað það var gaman hjá krökkunum á námskeiðunum í fyrra;)
