Þú ert hér: Forsíða Útilífsskóli Fréttir
Útilífsskóli

Skráning í Útilífsskóli Kópa sumarið 2012 hafinn

Föstudagur, 11. maí 2012 14:31

Skráning í Útilífsskóla Kópa fyrir sumarið 2012 er hafinn. Hægt er að klikka á HÉRNA til að skrá börnin á námskeið í sumar.
Allar nánari upplýsingar eru í dálknum hér fyrir ofan. 

Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða viku námskeið. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 11 ára fædd 2000 til 2004.

 

Námskeið 25-29 júlí hefur verið fellt niður

Föstudagur, 22. júlí 2011 09:42

Seinasta námskeið Útilífsskóla Kópa sem átti að vera 25-29 júlí (námskeið 8) hefur verið fellt niður.

Ástæðan er sú að starfsfólk Útilífsskólans eru á leið á Alheimsmót skáta í Svíþjóð sem byrjar í næstu viku. 


Kveðja 

starfsfólk Útilífsskólans

 

Námskeið 5

Föstudagur, 08. júlí 2011 09:35


Jæja!  Nú er vika 5 senn að líða.

Við höfum brallað ýmislegt skemmtilegt í þessari viku, við fórum meðal annars í óvissuferð í Öskjuhlíðina þar sem við fórum í póstaleik og kíktum aðeins við í Perlunni. Á leiðinni til baka fórum við í smá heimsókn til Landnema í Reykjavík og fengum að borða nestið hjá þeim, þar var útilífsskóli í fullum gangi og voru krakkarnir þar að grilla.

Sundferðin var svo í gær og vorum við mjög heppin með veðrið!  Sól og bongóblíða allan tímann :)
Við kíktum svo við á Rútstúni og borðuðum hádegisnestið okkar, áður en við kíktum við á Náttúrusafninu.

Í dag ætlum við svo að súrra með krökkunum, en það hefur alltaf verið mjög vinsælt :)
Við ætlum líka að grilla pylsur og sykurpúða og enda svo daginn á rosalegu vatnsstríði ......Þannig það verður ekkert nema stuð í allan dag! :)


Við segjum bara góða helgi og takk fyrir vikuna!

Kveðja
Starfsfólk Útilífsskólans

 

Fréttir af Útilífsskóla Kópa

Mánudagur, 04. júlí 2011 12:06


Útilífsskóli Kópa hefur verið í fullum gangi seinustu vikurnar.

Við höfum gert margt skemmtilegt saman meðal annars farið í klifur og sig hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, farið í sund, óvissuferðir, grillað saman pylsur og sykurpúða og farið í vatnsstríð.
Við höfum verið dugleg að heimsækja hin ýmsu söfn. Í seinustu viku var farið í ratleik á Þjóðminjasafni Íslands, í vikunni þar á undan var farið á Árbæjarsafnið og við höfum líka verið dugleg að fara á Náttúrusafnið í Kópavogi.

Nú er farið að síga á seinni helming sumarnámskeiða hjá okkur og enn er laust á öll námskeiðin sem eftir eru!

Við hvetjum krakka á aldrinum 8-11 ára að koma hressandi og skemmtilegt Útilífsnámskeið að hætti skáta í sumar! :)

Kær kveðja

Starfsfólk Útilífsskólans

 

Útilífsskólinn hefst aftur

Föstudagur, 29. apríl 2011 13:17

Skátafélagið Kópar býður nú upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann í annað skipti. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru stangveiði, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða viku námskeið. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 11 ára fædd 2000 til 2003.

Skráning er hafin á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  þarf að koma fram hvað námskeiði er óskað eftir, nafn barnsins og kennitala.

Hér getið þið séð myndir af því hvað það var gaman hjá krökkunum á námskeiðunum í fyrra;)

 

Sumarstarfi lokið

Mánudagur, 12. júlí 2010 13:04

Þá eru námskeiðin í Útilífsskóla Kópa lokið þetta sumarið. Viljum þakka öllum þátttakendum kærlega fyrir okkur, þetta er búið að vera gott sumar.

Í skátaheimilinu eru óskilamunir frá námskeiðunum og hægt er að nálgast þá þessa vikuna, best er að hringja á undan til að athuga með viðveru.

Myndir frá námskeiðunum koma inn á myndasíðu Kópa á næstu dögum.

 

Takk fyrir gott sumar,

starfsfólk Útilífsskóla Kópa

 

Syndum, syndum...

Fimmtudagur, 08. júlí 2010 15:58

... í Kópavogslaug, mér er heitt, mér er kalt í Kópavogslaug....
þetta fræga lag varð að veruleika í dag en leið okkar lá í Sundlaug Kópavogs þar sem að við skemmtum okkur konunglega í rennibrautunum og í dótinu í lauginni.
Við byrjuðum samt daginn á því að heimsækja Bókasafn Kópavogs og fengum að lesa nokkrar bækur þar sem var verulega gaman. Svo skoðuðum við líka Náttúrusafn Kópavogs.

Í gær var svo óvissuferðin okkar, við byrjuðum á því að missa af strætó en fórum í leiki á meðan við biðum eftir þeim næsta. Svo var ferðinni heitið í Elliðárdalinn og á Árbæjarsafnið.

Það er sko ekki hægt að láta sér leiðast í Útilífsskólanum. Á morgun er svo síðasti dagurinn, hann verður rosalega skemmtilegur.

 

Síðasta námskeiðið

Mánudagur, 05. júlí 2010 08:45

Í þessari viku, 5. - 9. júlí, er síðasta námskeið Útilífsskóla Kópa sumarið 2010. Sumarið er búið að vera fljótt að líða sem bendir til þess að það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur.

Í dag ætlum við að fara í skemmtilega kynningarleiki og í póstaleik, stanslaust stuð.

 

Alltaf jafn gaman

Föstudagur, 02. júlí 2010 07:46

Að sjálfsögðu er alltaf jafn gaman í Útilífsskólanum. Í þessari viku erum við búin að gera margt. Við fórum t.d að klifra og síga hjá HSSK og í mjög skemmtilegan ratleik um skemmuna þeirra. Á miðvikudaginn fórum við í óvissuferð að Reynisvatni, við tókum tvo strætóa og borðuðum nestið okkar við vatnið. Við fórum svo í póstaleik um svæðið og enduðum óvissuferðina með því að ganga inn í skóginn við vatnið og grilla sykurpúða.
Í gær fórum við svo í heimsókn í Safnahús Kópavogs og síðan í sund.

Svo í dag verður heljarinnar vatnsstríð, útieldun og súrringar :)

 

Námskeið 4

Mánudagur, 28. júní 2010 14:41

Í dag hófst fjórða námskeiðið okkar. Námskeiðin hafa gengið mjög vel í sumar og er varla hægt að segja annað en að það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur. Þetta námskeið er það næstsíðasta þannig að nú fer hver og einn að verða síðastur til þess að skrá sig á síðasta námskeiðið sem byrjar í næstu viku.

Í dag byrjuðum við daginn á að fara í hið sívinsæla spil ,,Varúlf", þvínæst fórum við út í fána og leiki og svo byrjaði lækjarpóstaleikurinn. Það er búið að vera fínt veður í allan dag, hvorki of kalt né of heitt og því er þetta fullkominn dagur til þess að vera úti að leika sér.

 
Síða 1 af 2