Þú ert hér: Forsíða Sveitir RS. Group
articles
Fréttir tengdar sveitinni:

Áheitagangan gekk vel

Mánudagur, 21. febrúar 2011 19:17

Kópar hófu Góðverkavikuna með stæl þegar þeir gengu til styrktar skátum í Suður- Afríku sunnudaginn 21. febrúar. Ekki liggur endanlega fyrir hvað mikill peningur safnaðist en  ljóst að það eru hátt í 200 þúsund krónur sem skátarnir náðu safna, sem samsvarar um það bil 250 fermetra flöt fyrir skátana í Suður- Afríku. Þeir sem eiga eftir að koma áheitum til skila geta greitt á reikning 1135-05-408804. kt. 700371-2719

Nokkrir skátar gengu frá Skátaskálanum Þristi (ca 40km). Við skátaskálann Hvell við Elliðaárvatn bættust svo fleiri í hópinn og þeir yngstu sameinuðust þeim við Salalaug. Hópurinn gekk svo þaðan að skátaheimilinu þar sem allir fengu kakó og kex. Alls tóku tæplega 70 krakkar þátt og foreldrar létu einnig sjá sig.  

Dagurinn var frábær í alla staði, veðurguðirnir léku við okkur og allt gekk að óskum. Við þökkum Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrir aðstoðina ásamt þeim foreldurum sem lögðu sitt af mörkum. 

Myndir eru komnar á heimasíðuna

Óvissuferð Rs. Atóm og Rs. Group

Fimmtudagur, 18. mars 2010 17:32
Helgina 12. - 14. mars fóru Róversveitin Atóm og Rekkaskátasveitin Group í óvissuferð. Það var Atóm sem að skipulagði ferðina og var haldið að Hjörleifshöfða á föstudagsvköldinu, þar sem ákveðið var að gista í helli. Þegar komið var að Hjörleifshöfða var ákveðið að stoppa örlitla stund í Slysavarnarskálanum og var hann skoðaður hátt og lágt, en svo var haldið af stað í hellinn. Þegar í hellinn var komið var strax farið í að kveikja eld og koma gítarnum fyrir á réttan stað eða í höndum Brynjars. Svo ákváðum við að tjalda tjaldi í hellinum þar sem að droparnir seytluðu ört úr loftinu og einnig var pínu vindur.

Ný heimasíða

Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 12:24
Á kvöldvökunni í gær var ný heimasíða félagsins formlega opnuð. Hefur útlit og uppsetning verið uppfærð sem og kerfið að baki síðunnar til að auðvelda uppfærslur á efni. Er ætlunin í framhaldinu að halda lífi á síðunni með tíðum fréttum og myndum. Ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á uppsetningu síðunnar, en helst má nefna að nú er hægt að smella á atburði í "Á döfinni" til að sjá nánari skýringar, á undirsíðum sveita birtast nú allar fréttir sem tengjast sveitunum og við hefur bæst fróðleikshorn. Enn er eftir talsverð vinna við að setja inn efni á síðuna en meðan unnið er í því er hægt að skoða það sem komið er.

Rs Group

RS. Group er blönduð sveit krakka á menntaskólaaldrinum þau hittast minnst einu sinni í viku og alltaf á miðvikudögum kl. 20:00. Foringjar eru Örvar ofsavondur og Hreiðar 66

Sveitarforingjar Rs Group

articles

Sveitarforingi: Örvar Ragnarsson
Sími: 894-2074
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

articles

Sveitarforingi: Hreiðar Oddsson
Sími: 898-0282
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Starfsplan Rs Group

starfsplan