Kópar hófu Góðverkavikuna með stæl þegar þeir gengu til styrktar skátum í Suður- Afríku sunnudaginn 21. febrúar. Ekki liggur endanlega fyrir hvað mikill peningur safnaðist en ljóst að það eru hátt í 200 þúsund krónur sem skátarnir náðu safna, sem samsvarar um það bil 250 fermetra flöt fyrir skátana í Suður- Afríku. Þeir sem eiga eftir að koma áheitum til skila geta greitt á reikning 1135-05-408804. kt. 700371-2719
Nokkrir skátar gengu frá Skátaskálanum Þristi (ca 40km). Við skátaskálann Hvell við Elliðaárvatn bættust svo fleiri í hópinn og þeir yngstu sameinuðust þeim við Salalaug. Hópurinn gekk svo þaðan að skátaheimilinu þar sem allir fengu kakó og kex. Alls tóku tæplega 70 krakkar þátt og foreldrar létu einnig sjá sig.
Dagurinn var frábær í alla staði, veðurguðirnir léku við okkur og allt gekk að óskum. Við þökkum Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrir aðstoðina ásamt þeim foreldurum sem lögðu sitt af mörkum.
Myndir eru komnar á heimasíðuna
Í síðustu viku hafa dreka- og fálkaskátar komið heim með Góðverkadagbók. Skátunum gefst kostur á því að vinna allavega eitt góðverk á dag í heila viku og fylla út í bókina sína. Þegar því lýkur geta þau komið með hana á skrifstofu skátaheimilisins og fengið smá viðurkenningu fyrir. Ef ykkur hefur ekki borist Góðverkadagbókin er hægt að nálgast hana á hér.
Einnig hvetjum við sem flesta til að kíkja á skemmtilega heimasíðu verkefnisins www.godverkin.is
Vonum að sem flestir taki þátt og að góðverkagleði skátanna smiti aðra fjölskyldumeðlimi!
Sunnudaginn 20.febrúar ætla Kópar að hefja með stæl Góðgerðavikuna sem Bandalag íslenskra skáta hefur staðið fyrir undanfarin ár. Við ætlum að skora okkur sjálf á hólm og safna áheitum. Áskorunin felst í því að ganga þrjár mismunandi vegalengdir.
Hægt er að leggja áheitin inn á söfnunarreikning félagsins: bnr: 1135-05-408804 kt.700371-2719
Skráning hér
Helgina 20.-21. nóvember ætla fálkaskátar í Ránfuglum og Furðufuglum að fara í útilegu í skátaskálann Þrist. Mæting er klukkan 9:00 við sveitabæinn Hrafnhóla en farið verður fótgangandi upp í Þrist. Áætluð heimkoma er klukkan 16:00 á sunnudeginum við Hrafnhóla.
Fálkaskátar
Ævintýrið heldur áfram. Áhersla er lögð á trygglyndi, félagslyndi, hlýðni og líkamlegt heilbrigði með því að taka þátt í útilífi , skemmtilegum leikjum og fjölbreyttum verkefnum á vikulegum fundum. Farið er í dagsferðir og skálaútilegur. Fálkaskátar fara í félagsútilegu Kópa og á skátamót að sumri til.
Furðufuglar
Strákar á aldrinum 10 - 12 ára (árgangar 1999 - 2001)
Furðufuglar: Fimmtudagar kl: 17:00-18:30
Foringjar: Gísli Pétur Árnason og Ívar Eiðsson
Starfsplan

Sveitarforingi: Gísli Pétur Árnason
Sími: 869-2031
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Sveitarforingi: Ívar Eiðsson
Sími:
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Opið: Mánudaga til Fimmtudaga 17 - 19
Sími: 554-4611