Þú ert hér: Forsíða Sveitir - Andrómeda
articles
Fréttir tengdar sveitinni:

Áheitagangan gekk vel

Mánudagur, 21. febrúar 2011 19:17

Kópar hófu Góðverkavikuna með stæl þegar þeir gengu til styrktar skátum í Suður- Afríku sunnudaginn 21. febrúar. Ekki liggur endanlega fyrir hvað mikill peningur safnaðist en  ljóst að það eru hátt í 200 þúsund krónur sem skátarnir náðu safna, sem samsvarar um það bil 250 fermetra flöt fyrir skátana í Suður- Afríku. Þeir sem eiga eftir að koma áheitum til skila geta greitt á reikning 1135-05-408804. kt. 700371-2719

Nokkrir skátar gengu frá Skátaskálanum Þristi (ca 40km). Við skátaskálann Hvell við Elliðaárvatn bættust svo fleiri í hópinn og þeir yngstu sameinuðust þeim við Salalaug. Hópurinn gekk svo þaðan að skátaheimilinu þar sem allir fengu kakó og kex. Alls tóku tæplega 70 krakkar þátt og foreldrar létu einnig sjá sig.  

Dagurinn var frábær í alla staði, veðurguðirnir léku við okkur og allt gekk að óskum. Við þökkum Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrir aðstoðina ásamt þeim foreldurum sem lögðu sitt af mörkum. 

Myndir eru komnar á heimasíðuna

Áheitaganga

Mánudagur, 07. febrúar 2011 19:12

Sunnudaginn 20.febrúar ætla Kópar að hefja með stæl Góðgerðavikuna sem Bandalag íslenskra skáta hefur staðið fyrir undanfarin ár. Við ætlum að skora okkur sjálf á hólm og safna áheitum.  Áskorunin felst í því að ganga þrjár mismunandi vegalengdir.

Hægt er að leggja áheitin inn á söfnunarreikning félagsins: bnr: 1135-05-408804 kt.700371-2719

Skráning hér

Ný heimasíða

Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 12:24
Á kvöldvökunni í gær var ný heimasíða félagsins formlega opnuð. Hefur útlit og uppsetning verið uppfærð sem og kerfið að baki síðunnar til að auðvelda uppfærslur á efni. Er ætlunin í framhaldinu að halda lífi á síðunni með tíðum fréttum og myndum. Ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á uppsetningu síðunnar, en helst má nefna að nú er hægt að smella á atburði í "Á döfinni" til að sjá nánari skýringar, á undirsíðum sveita birtast nú allar fréttir sem tengjast sveitunum og við hefur bæst fróðleikshorn. Enn er eftir talsverð vinna við að setja inn efni á síðuna en meðan unnið er í því er hægt að skoða það sem komið er.

Andrómeda

Dróttskátasveitin Andrómeda

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Dróttskátar

Hvort sem það er gönguferð, varðeldur, næturleikur, hellaferð, ging gang gulli gulli, hnútakennsla, tjaldútilega, hlátur, skátaheit, útieldun, Netið, utanlandsferðir, rikk tikk rikka tikka tikk, fánaathöfn, skálaskoðun, skyndihjálp, skátamerki, skátavígsla eða kakó og kex þá er það ómissandi þáttur af skátastarfi nú.
Skátar hittast vikulega á fundum og vinna í hópastarfi að margþættum verkefnum, taka þátt í útilífi og alþjóðlegu skátastarfi .

Andrómeda

Strákar og stelpur á aldrinum 13 - 15 ára (árgangar 1996 - 1998)

Fundartímar: Fimmtudagar kl 19:00 - 20:30

Sveitarforingjar Andrómedu

articles

Sveitarforingi:
Hreiðar Oddsson
Sími: 898-0282
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

articles

Aðstoðarsveitarforingi:
R.S Atóm
Sími:
Netfang: 

Starfsplan Andrómedu

Starfsplan