Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni er í eigu skátahreyfingarinnar. Þar eru haldnir margvíslegir viðburðir á vegum skáta s.s. námskeiðahald, ráðstefnur, æfingar, oþh. Skátar fara með útilegur á Úlfljótsvatn stórar sem smáar, í skálana yfir veturinn og í tjaldútilegur á sumrin. Þá halda þeir reglulega skátamót á svæðinu og var síðasta Landsmót skáta haldið þar 2005 með um 4000 þátttakendum. Staðurinn er með alla aðstöðu til að þjónusta þennan fjölda. Skátar hafa byggt útilífsmiðstöðina upp með það í huga að unnt sé að halda þar fjölmenn útilífsmót (tjaldmót) fyrir þúsundir þátttakenda með nauðsynlegum tjaldflötum, hreinlætisaðstöðu og margvíslegri afþreyingu.
Útilífsmiðstöðin býður almenningi einnig að njóta aðstöðunnar og er staðurinn leigður út til margvíslegra viðburða fyrir smærri og stærri hópa. Jafnframt er boðið upp á margvíslega þjónustu til hópa s.s. að skipuleggja ýmsa dagskrá, annast mat fyrir hópa, ferðir ofl. Gjarnan er um að ´æða Óvissuferðir, hvataferðir, fjölskyldudaga, starfsmannadaga, hvataferðir og áfram má telja - allt fer þetta vel á Úlfljótsvatni. Þannig hafa fjölmörg fyrirtæki komið árlega í hvata, hópeflis - og skemmtiferðir á Úlfljótsvatn. Já það eru allir velkomnir!
Sjá nánar www.ulfljotsvatn.is



