Þú ert hér: Forsíða Landsmót 2012 Fjölskyldubúðir

Fjölskyldubúðir

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Tekið af http://www.skatar.is/landsmot2012/default.asp?ItemGroupID=353

Fjölskyldubúðir

 Fjölskyldubúðir er rótgróinn þáttur á landsmóti. Þær eru sérstakar tjaldbúðir þar sem fjölskyldur skátanna og vandamenn geta sett niður tjaldið sitt, tjaldvagn eða fellihýsi og tekið þátt í landsmótsævintýrinu. Ekki þarf að tilkynna þátttöku í fjölskyldubúðum. Hægt er að dvelja í fjölskyldubúðum eins lengi og gestir óska þess.

Sérstök athygli skal vakin á því að ungmenni, skátar sem aðrir, yngri en 18 ára fá ekki að dvelja í fjölskyldubúðum nema í fylgd foreldra eða forráðamanna og þarf
fjölskyldan að koma saman á mótsstað.

Þátttakendur í fjölskyldubúðum annast sjálfir um matinn fyrir sig en mögulegt verður að kaupa hráefni í verslun mótsins s.s. brauð, álegg, mjólk, gos, morgunmat, pylsur, samlokur og fleira.

Hluti af almennri dagskrá mótsins verður opin fjölskyldum sem gista í fjölskyldubúðum. Einnig verður sérstök fjölskyldubúðadagskrá fyrir yngri börn í boði frá miðstöð fjölskyldubúða. Á kvöldin verður hægt taka þátt í dagskrá á torgum almennra þáttakenda en einnig verða haldnar sérstakar fjölskyldubúða kvöldvökur og leikir.

Verð

Þá er komið verð í fjölskyldubúðir og það verður sem hér segir:

2.800.- Stofngjald fyrir hvern og einn. innif: Mótsbók - klútur – Dagskrá

1.200.- Fullorðinn verð per. Nótt
600.- Barn 6-10 ára verð per. Nótt
1.300.- Rafmagnverð per.Nótt - Rafmagnskassar eru víða á tjaldflötum en þar sem að dagskrá og rekstur landsmóts þarfnast mikils rafmagns verða afnotin takmörkuð en einhver möguleiki verður á að kaupa aðgang að rafmagni og gildir þá reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Ef vandamál er með rafmagn er rafmagnsþjónusta eingöngu veitt til klukkan 01:00.

Nánari upplýsingar á http://www.skatar.is/landsmot2012/default.asp?ItemGroupID=353

 

skraningarhnappurstorhvitt

Á döfinni

02. júní 12:00 - 03. júní 18:00
Drekaskátamót

Ný heimasíða

Tökum á móti ábendingum, hugmyndum, fréttum og myndum á heimasida@kopar.is