Þú ert hér: Forsíða Landsmót 2012 Fjáraflanir

Fjáröflun - Rauðanefið og Sígræna Jólatréð

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Kæru foreldrar og forráðamenn!!

 

Nú höldum við ótrauð áfram í fjáröflunum vegna Landsmótsins næsta sumar.

 

Sala á RAUÐA NEFINU fyrir UNICEF.

 

Við ætlum okkur að byrja á fimmtudaginn 1.des. þannig að við þurfum að bregðast fljótt við.

Allir sem mæta til að selja nef fá jafnmikið út úr söfnuninni og ætlum við að láta það ganga uppí sameiginlegan kostnað.  Nefið kostar 1000.- og fáum við 200.- fyrir hvert nef sem selst. Ef einhverjir komast ekki á uppgefnar vaktir er möguleiki á því í næstu viku að fá nef heim og selja í kringum sig.  Við munum selja fyrir framan verslanir á Smáratorgi, Krónunni í Lindum og í Smáralind. Það verða alltaf a.m.k tveir sem selja saman og  yngri börn verða með þeim eldri.

Hér er hægt að sækja vaktaplan þar merkið þið við hvenær börnin ykkar komast og sendið á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Sígræn jólatréð.

 

Bandalag íslenskra skáta hefur verið með sölu á sígrænum jólatrjám í tuttugu ár.  Sígræna jólatréð  er sérlega vandað, með 10 ára ábyrgð og fæst í 12 mismunandi stærðum (90-500cm). Nú gefst krökkunum tækifæri á því að selja slík tré.

 

Hér er hægt að fá upplýsingar um verð og arð skáta.

 

Ef þið seljið jólatré látið okkur þá vita því við munum safna pöntunum saman.

 

Allar upplýsingar um fjáraflanir vegna Landsmótsins er á heimasíðu Kópa www.kopar.is. Þar farið þið inná Landsmót 2012 og fjáraflanir.

 

Ef þið hafið spurningar hikið þá ekki við að hafa samband  á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða við

Magneu í síma:  846 2129 eða Hreiðar í síma: 898 0282.

 

Með skátakveðju,

 

Magnea, Hreiðar og Gísli Pétur

Fararstjórn Kópa á Landsmót

 

skraningarhnappurstorhvitt

Á döfinni

02. júní 12:00 - 03. júní 18:00
Drekaskátamót

Ný heimasíða

Tökum á móti ábendingum, hugmyndum, fréttum og myndum á heimasida@kopar.is