Þú ert hér: Forsíða Fróðleikur Viltu verða skáti

Viltu verða skáti

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Allir krakkar frá 8 ára aldri (3.bekkur) eru velkomnir í skátana. Á haustin er sérstakur innritunardagur, en það er að sjálfsögðu hægt að byrja í skátunum hvenær sem er. Til þess að skrá sig í skátana þarf að smella á þennan tengil.
Einnig er hægt að setja sig í samband við starfsmann á skrifstofu skátaheimilisins í gegnum síma eða tölvupóst. Einnig er hægt að mæta í skátaheimilið á auglýstum fundartíma.

Félagsgjald fyrir heilan vetur er 19.500 kr. Kópavogsbær veitir börnum með lögheimili í Kópavogi tómstundastyrk að upphæð 30.000 kr á ári sem nýta skal á tveimur stöðum, 15.000 kr á hvorum stað. Til þess að fá tómstundastyrkinn þurfa foreldrar að koma í skátaheimilið og fylla út samning. Ef styrkur er nýttur þurfa foreldrar einungis að leggja út fyrir mismuninum eða 4.500 kr. fyrir veturinn. Hægt er að lesa nánar um tómstundastyrkinn hér. Veittur er 2.000 kr systkinaafsláttur.