Þú ert hér: Forsíða Fróðleikur Skátadagskráin

Skátadagskráin

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Með tilkomu nýju skátadagskrárinnar hafa orðið áherslubreytingar. Skátaaðferðin hefur fengið aukið vægi. Reynt er að laga starfið enn frekar að þörfum barna og unglinga miðað við þroska þeirra og aldur. Tekin hefur verið upp ný aldursskipting sem er nær þvi sem börn og unglingar þekkja úr skólaumhverfinu. Það hefur í för með sér breytingar á búningum og táknum hvers aldursstigs. Framfarakerfið hefur einnig tekið til endurskoðunar.

Vígsla nýrra skáta er ekki lengur bundin við skátadaginn, 22. febrúar, heldur getur hún verið hvenær árs sem er að afloknu nýliðatímabili. Færsla milli aldursstiga fer fram að hausti, þar sem skátinn kveður yngri hópinn og hann er boðinn velkominn í þann eldri.