Kópar hófu Góðverkavikuna með stæl þegar þeir gengu til styrktar skátum í Suður- Afríku sunnudaginn 21. febrúar. Ekki liggur endanlega fyrir hvað mikill peningur safnaðist en ljóst að það eru hátt í 200 þúsund krónur sem skátarnir náðu safna, sem samsvarar um það bil 250 fermetra flöt fyrir skátana í Suður- Afríku. Þeir sem eiga eftir að koma áheitum til skila geta greitt á reikning 1135-05-408804. kt. 700371-2719
Nokkrir skátar gengu frá Skátaskálanum Þristi (ca 40km). Við skátaskálann Hvell við Elliðaárvatn bættust svo fleiri í hópinn og þeir yngstu sameinuðust þeim við Salalaug. Hópurinn gekk svo þaðan að skátaheimilinu þar sem allir fengu kakó og kex. Alls tóku tæplega 70 krakkar þátt og foreldrar létu einnig sjá sig.
Dagurinn var frábær í alla staði, veðurguðirnir léku við okkur og allt gekk að óskum. Við þökkum Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrir aðstoðina ásamt þeim foreldurum sem lögðu sitt af mörkum.
Myndir eru komnar á heimasíðuna
