Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Góðverk dagsins

Góðverk dagsins

Mánudagur, 21. febrúar 2011 17:27

Í síðustu viku hafa dreka- og fálkaskátar komið heim með Góðverkadagbók. Skátunum gefst kostur á því að vinna allavega eitt góðverk á dag í heila viku og fylla út í bókina sína.  Þegar því lýkur geta þau komið með hana á skrifstofu skátaheimilisins og fengið smá viðurkenningu fyrir. Ef ykkur hefur ekki borist Góðverkadagbókin er hægt að nálgast hana á hér
Einnig hvetjum við sem flesta til að kíkja á skemmtilega heimasíðu verkefnisins www.godverkin.is

Vonum að sem flestir taki þátt og að góðverkagleði skátanna smiti aðra fjölskyldumeðlimi!