Tilgangurinn með brölti þessu er ekki eingöngu að takast á við eigin getu heldur að safna peningum fyrir efnaminni skáta í Mpumalanga í Suður- Afríku. Í þessum tilgangi geta skátarnir safnað áheitum hjá velunnurum sínum til stuðnings Nangu Thina.
Foreldrar og fjölskyldur skátanna eru velkomin að taka þátt en mikilvægt er að hver og einn meti hvaða vegalengd henti sér. Skátarnir geta að sjálfsögðu komið einir og verða þá í umsjá foringja félagsins.
Áætlað er að göngunni ljúki kl. 17:00 í skátaheimilinu og verður þar stutt samvera og léttar veitingar.
Nánari upplýsingar á eftirfarandi heimasíðum
http://www.scoutingmpumalanga.com/
