Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Drekaskátar í skautaferð

Drekaskátar í skautaferð

Þriðjudagur, 18. janúar 2011 19:08
Flokkar: Drekaskátar,
Föstudaginn 28.janúar ætla Drekaskátar að skella sér á skauta í Skautahöllinni í Laugardalnum. Mæting er í Skautahöllinna kl. 17:00 og biðjum við foreldra um að sækja börn sín kl. 18:30.  Gjaldið er 1000 krónur fyrir þá sem leigja skauta en 600 krónur fyrir þá sem koma með skauta með sér. Gott er að hafa nesti með sér en sjoppa er á staðnum þar sem hægt er að kaupa drykki og annað góðgæti.
ATH!!  Nauðsynlegt er að allir séu vel klæddir (ullarsokkar, húfu, vettlingar, föðurland og ALLS EKKI GALLABUXUR). Gott væri að vita hverjir koma í ferðina svo við gerum okkur grein fyrir fjölda.  Skráning á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.