Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Vel heppnuð vígsla drekaskáta

Vel heppnuð vígsla drekaskáta

Fimmtudagur, 25. nóvember 2010 21:10
Flokkar: Drekaskátar,

Sunnudaginn 14.nóvember var mikið um dýrðir hjá Drekaskátum. Þá voru 29 nýjir Drekaskátar sem vígðust inní Skátahreyfinguna.  Það er óhætt að segja að það voru stoltir skátar sem báru klútinn sinn í fyrsta skiptið þennan dag. 

Þegar allir voru búnir að næra sig var hópnum skipt í hópa og farið í Póstaleik.  Það var  t.d. grillað, búnar til sjúkrabörur, sungið og leikið sér.  Þegar póstleiknum lauk var gott að koma inn úr kuldanum og fá smá hressingu.  Þá tók við kvöldvaka sem var þó um hábjartan daginn og mátti heyra mikinn söng og hlátrasköll.  Það voru hressir Drekaskátar sem héldu heim á leið eftir vel heppnaðan dag.

Myndir eru komnar í myndasafnið