Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Útilega Ránfugla og Furðufugla

Útilega Ránfugla og Furðufugla

Mánudagur, 15. nóvember 2010 18:41

Helgina 20.-21. nóvember ætla fálkaskátar í Ránfuglum og Furðufuglum að fara í útilegu í skátaskálann Þrist. Mæting er klukkan 9:00 við sveitabæinn Hrafnhóla en farið verður fótgangandi upp í Þrist. Áætluð heimkoma er klukkan 16:00 á sunnudeginum við Hrafnhóla.

Kostnaður við ferðina er 1.000 krónur og er kvöldmatur á laugardegi og gisting innifalin, drengirnir þurfa að koma með eiginn mat. Skila þarf leyfisbréfi og borga ferðina í síðasta lagi í vikunni 15-19 nóvember. Athugið að klukkur eru bannaðar í útilegunni.
Nánari upplýsingar um útileguna veita sveitaforingjar sveitanna.