Mæting er í skátaheimilið kl. 19:30 föstudaginn 1. október og verða allir að vera búnir að borða kvöldmat þá. Brottför er stundvíslega kl. 20:00. Áætluð heimkoma er kl. 16:00 sunnudaginn 3. október.
Kostnaður við ferðina er 6.000 krónur og er allt innifalið í því (rúta, gisting og matur alla helgina).
Mikilvægt er að þeir sem ætla í ferðina skrái sig með því að greiða 1.000 krónur og skila leyfisbréfi ekki seinna en miðvikudaginn 29. september. Restina af gjaldinu greiðist í síðasta lagi við brottför.
Staðfestingargjald og/eða fullt gjald er hægt að millifæra inn á reikning 1135-05-751030. Kt 700371-2719. Setja nafn barns í tilvísun og senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. mce_marker
