Nú er hefðbundnu vetrarstarfi Kópa lokið og því ekki venjulegir fundir á hefðbundnum fundartíma. Framundan er Drekaskátamót og er fundur fyrir þá drekaskáta sem stefna á mótið á morgun 1. júní kl. 18:00-19:00.
Dróttskátar félagsins stefna síðan á Landnemamót í Viðey sem haldið verður 24.-27. júní.
Vert er að minna á Útilífsskóla Kópa, en nánari upplýsingar um hann er að finna hér til hliðar á síðunni.
Með þökk fyrir gott samstarf í vetur!