Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Fálkaskátaútilega Kópa, Vífils og Fossbúa 14. - 16. maí

Fálkaskátaútilega Kópa, Vífils og Fossbúa 14. - 16. maí

Fimmtudagur, 27. maí 2010 17:38

Árið er 2010 og dagurinn er 14. maí, klukkan er 19:30. Hressir fálkaskátar keyra ásamt foreldrum/forráðamönnum inn á bílastæði við Garðatorg, fullir tilhlökkunar á að fara austur á Úlfljótsvatn og eyða helginni í faðmi töfra Undralandsins. Allir koma sér fyrir í rútunni og upp úr áttaleytið er lagt af stað. Mikið var um söng og gleði í rútunni og var því ekki að leyna að spennan var mikil í skátunum. Tæpum klukkutíma síðar var rennt í hlað á Úlfljótsvatni og rifu skátarnir strax út töskurnar og tjöldin og tjölduðu og komu sér fyrir. 

 Þegar allir voru búnir að undirbúa svefnstaðinn sinn var farið í kvöldkaffi, þá var kynnt dagskrá morgundagsins og svo stuttu síðar var farið að sofa.
Á laugardeginum vöknuðu allir við ljúfan morgunsöng að hætti Brynjars og var strax farið að gera sig klára fyrir tjaldbúðaskoðun, fána, morgunleikfimi og morgunmat. Eftir morgunmat byrjaði dagskráin en verið var að undirbúa skátana fyrir hike sem átti að vera í seinni dagskráliðinum. Póstarnir sem voru í boði voru m.a. skyndihjálp, nestisgerð, ferðamennska og leikir. Eftir póstaleikinn var farið í hádegismat og stuttu eftir hádegismat var lagt af stað í hike. Krökkunum var skipt í helming og helming og gekk annar hópurinn að Fossá og þaðan að Grafningsrétt en hinn hópurinn að Álfaseli og þaðan að Grafningsrétt. Þegar í Grafningsrétt var komið var borðað nesti og sumir fóru í leiki. Á ,,heimleiðinni" skiptu hóparnir síðan um leið og ríkti mikil sönggleði í báðum hópunum. Það var virkilega gott veður og því góður dagur til að skoða nágrenni Úlfljótsvatns.
Seinnipartinn var frjáls tími þar sem skátunum gafst kostur á að spreyta sig í klifurturninum, síga, fara í fótbolta, bótfolta, föndur, leiki, vaða í vatninu eða sitja inni í tjaldbúð og hafa gaman. Eftir frjálsa dagskráliðinn var kvöldmatur þar sem að krakkarnir borðuðu dýrindis Úlfljótsvatnshamborgara. Eftir kvöldmatinn var svo kvöldleikur eða söluleikurinn frægi og var endað kvöldið með kvöldvöku og kvöldkaffi. Á sunnudeginum voru hefðbundin morgunverk, svo var tekið tjöldin niður og pakkað ofan í töskur. Eftir hádegismat var unnið samfélagsverkefni en þótti skátunum alveg sjálfsagt að hjálpa staðarhaldaranum við að hreinsa staðinn og færa varðeldasteina hinga og þangað. Lagt var af stað í bæinn klukkan 15:00 og komið tæpum klukkutíma síðar á Garðatorg. Þetta var virkilega skemmtileg helgi og getum við ekki sagt annað en að útilegan hafi heppnast mjög vel í alla staði.

 

Myndir úr ferðinni er að finna á myndasíðunni okkar.