Sumardagurinn fyrsti er n.k. fimmtudag 22. apríl, en sá dagur hefur í áraraðir verið haldinn hátíðlegur af skátum í landinu.
- Dagurinn hjá skátunum í Kópum hefst með skátamessu í Hjallakirkju kl. 11:00 og eru allir skátar og foreldrar hvattir til að mæta (að sjálfsögðu í skátabúning) og eiga hátíðlega skátastund saman.
- Skátar leiða síðan skrúðgöngu frá Digraneskirkju að íþróttahúsinu Fífunni. Skrúðgangan hefst klukkan 13:30.
- Skátakaffið verður síðan á sínum stað í skátaheimilinu frá kl. 15:00.
Við hvetjum alla skáta til að taka virkan þátt í þessum skátadegi.
Gleðilegt sumar!!!
