Helgina 12. - 14. mars fóru Róversveitin Atóm og Rekkaskátasveitin Group í óvissuferð. Það var Atóm sem að skipulagði ferðina og var haldið að Hjörleifshöfða á föstudagsvköldinu, þar sem ákveðið var að gista í helli. Þegar komið var að Hjörleifshöfða var ákveðið að stoppa örlitla stund í Slysavarnarskálanum og var hann skoðaður hátt og lágt, en svo var haldið af stað í hellinn. Þegar í hellinn var komið var strax farið í að kveikja eld og koma gítarnum fyrir á réttan stað eða í höndum Brynjars. Svo ákváðum við að tjalda tjaldi í hellinum þar sem að droparnir seytluðu ört úr loftinu og einnig var pínu vindur.
Þegar allir voru búnir að koma sér vel fyrir var sungið nokkur vel valin skátalög, grillað sykurpúða, drukkið kakó og haft það gott í kringum eldinn, en fljótlega fórum við öll að sofa, enda klukkan orðin margt. Daginn eftir vöknuðum við öll hress og kát, fengum okkur morgunmat og tókum dótið okkar saman. Við héldum svo af stað til Víkur, en þar var stutt stopp, svo fórum við að Dyrhólaey og eyddum dágóðum tíma þar að skoða þennan fallega stað. Það var líka mjög gaman að leika sér á ströndinni, enda lék veðrið við okkur. Þegar við ákváðum svo að halda áfram var tekin sú ákvörðun að skella sér í Seljavallarlaug. Þar eyddum við dágóðum tíma enda ekki slæmt að baða sig eftir frábæran dag. Dagurinn var þó ekki alveg búinn því við ákváðum að skoða einn foss rétt hjá Seljalandsfossi og óðum á til þess að komast sem næst honum. Við héldum svo af stað á Selfoss, keyptum inn fyrir kvöldmatinn og héldum svo af stað á Úlfljótsvatn. Þar borðuðum við dýrindis kvöldmat, spiluðum spil langt fram eftir nóttu og höfðum það gaman. Á sunnudeginum vöknuðum við og byrjuðum við að ganga frá, við keyrðum svo í átt að Nesjavöllum og ákváðum að fara að skoða Þjófahelli, við fundum því miður ekki hellinn en ákváðum því að fara bara í stuttan göngutúr í staðinn.
Þetta var frábær ferð í alla staði og skemmtum við okkur öll konunglega. Það er sko ekki leiðinlegt að vera rekka- og róverskáti! Fullt af flottum myndum má sjá í myndaalbúmi hér á síðunni.