Á kvöldvökunni í gær var ný heimasíða félagsins formlega opnuð. Hefur útlit og uppsetning verið uppfærð sem og kerfið að baki síðunnar til að auðvelda uppfærslur á efni. Er ætlunin í framhaldinu að halda lífi á síðunni með tíðum fréttum og myndum. Ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á uppsetningu síðunnar, en helst má nefna að nú er hægt að smella á atburði í "Á döfinni" til að sjá nánari skýringar, á undirsíðum sveita birtast nú allar fréttir sem tengjast sveitunum og við hefur bæst fróðleikshorn. Enn er eftir talsverð vinna við að setja inn efni á síðuna en meðan unnið er í því er hægt að skoða það sem komið er.