Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Skyndihjálparmaður ársins

Skyndihjálparmaður ársins

Mánudagur, 22. febrúar 2010 12:40

Rauði kross Íslands hefur valið Magneu Tómasdóttur sem Skyndihjálparmann ársins 2009 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu. Magnea tók við viðurkenningu Rauða krossins í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð föstudaginn 11. febrúar á hátíðardagskrá Neyðarlínunnar og samstarfsaðila um 112-daginn.

Magnea bjargaði lífi föður síns, Tómasar Grétars Ólasonar, þegar hann fór í hjartastopp í sumarhúsi fjölskyldunnar á Hvalsnesi á Suðurnesjum.Tilgangur tilnefningarinnar er ekki síður að hvetja aðra til að læra skyndihjálp og vera þar af leiðandi hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla. Þess má geta að Magnea hefur nokkrum sinnum sótt skyndihjálparnámskeið og er ekki í vafa um að það hjálpaði henni í þessum erfiðu aðstæðum þar sem tók langan tíma að fá sjúkrabíl á staðinn.

Þess má geta að svo skemmtilega vildi til að þessi viðurkenning var veitt á afmælisdegi föður hennar, sem varð 75 ára 11. febrúar. Skátafélagið Kópar óskar Magneu og Tómasi Grétari til hamingu!

Frétt tekin af www.skatar.is