Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Félagsútilega 2012

Félagsútilega 2012

Featured
Þriðjudagur, 17. janúar 2012 22:10

Helgina 3. – 5. Febrúar ætlar Skátafélagið Kópar í félagsútilegu. Að þessu sinni verður farið á Úlfljótsvatn.

Að sjálfsögðu reynum við að halda kostnaðinum í lágmarki en hann er 7.500 kr. 2.500 kr afsláttur er fyrir þá sem hafa borgað félagsgjöld. Innifalið í því er rúta, gisting, allur matur og dagskrá. Skráning fer fram hér og þurfa allir að vera búnir að skrá sig síðasta lagi fimmtudaginn 2. febrúar. Skráning getur aðeins farið fram hafi skátinn verið búinn að skrá sig í félagið á netinu sem er gert hér. Aðeins er hægt er greiða með pening niðrí skátaheimilinu en einnig er hægt að leggja inná reikning skátafélagsins
Rkn.   1135-05-751030
Kt.       700371-2719

Mæting er í skátaheimilið kl 19:30 föstudaginn 3. Febrúar, þar verða allir að ganga frá greiðslum og skila inn leyfisbréfi (sem er hérna fyrir neðan). Einnig má millifæra greiðsluna fyrirfram og koma þá með útprentaða kvittun á föstudegi.

Ætlast er til að skátarnir séu búnir að borða kvöldmat. Áætluð heimkoma er um kl 15:30 á sunnudag.

Útbúnaðarlisti er hér fyrir neðan.

Allar frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Foringjar:

Kristín Kristinsdóttir                     616-2255
Tinna María Halldórsdóttir         691-6130
Tryggvi Bragason                          856-1861
Unnur Lilja Úlfarsdóttir               848-3536
Gísli Pétur Árnason                       869-2031

 

------------------------------------------------------------------------------------------

Leyfisbréf

Kennitala skáta: __________________________

Nafn skáta: ________________________________

Ég undirritaður forráðamaður, veiti hér með leyfi til þess að ofangreindur skáti fái að fara í

félagsútilegu Skátafélagsins Kópa vorið 2012.

___________________________________________________

Undirskrift foreldra

Útbúnaðarlisti

Föt:

-Skátabúningur og Klútur Mjög Mikilvægt!

 

-Hlý nærföt (líka til skiptanna), þ.m.t. síðar nærbuxur

-Nærföt og sokka til skiptana

-Síðerma peysa, t.d. fleece, thermo eða ullarblanda

-Regnjakki

-Regnbuxur

-Síðbuxur, t.d. úr fleece eða ullarblöndu

-Þykkir sokkar og auka sokkar

-Léttir skór, gönguskór, inniskór

-Vettlingar, húfa og trefill

Annað: 

-Hlýjan svefnpoka

-Spil (ef vill)

-Áttaviti

-Tannbursti og tannkrem

-Auka pokar undir blaut og skítug föt

-Vasaljós

-Myndavél

-Nammi er bannað það gleymdist að setja það á útbúnaðarlistann sem krakkarnir fá heim

Listinn er ekki tæmandi

Hægt er að nálgast bréfði á .docx formi hér.