Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Jólakvöldvaka Kópa

Jólakvöldvaka Kópa

Featured
Mánudagur, 12. desember 2011 18:05
Kæru Kópar!
Þriðjudaginn 13.desember verður jólakvöldvaka Skátafélagsins Kópa í Álfhólsskóla, Digranesmegin.
Kvöldvakan hefst stundvíslega klukkan 17:00 og lýkur henni klukkan 18:00
Diskótek verður fyrir Fálkaskáta og eldri sem lýkur klukkan 19:30.

Skátarnir mega hafa með sér nesti og drykki á diskótekið - ekki verður hægt að kaupa neitt á staðnum.

Foreldrar og aðrir fjölskyldumeðlimir eru velkomin til þess að taka þátt í jólakvöldvökunni.
Ath. að ætlast er til þess að foreldrar Drekaskáta sækji börn sín að kvöldvöku lokinni.

Eftir að jólakvöldvökunni lýkur hefst jólafrí.
Skátastarf mun hefjast þann 10.janúar 2012.


Skátafélagið Kópar óskar skátum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
Með skátakveðju!