Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Ferðasögur úr fálkaskátaútilegu

Ferðasögur úr fálkaskátaútilegu

Featured
Þriðjudagur, 01. nóvember 2011 17:35
Flokkar: Stjörnudísir,

Fálkaskátaútilega 21.-23. október 2011

Stelpurnar í Stjörnudísum skrifuðu ferðasögu um útileguna síðustu helgi. Hér má sjá sögur frá öllum flokkunum:

 

Snædísir

Við fórum í útilegu. Við byrjuðum á því að fara í skátaheimilið kl. 19:30 en rútan kom kl. 20:00. Þegar við komum á Úlfljótsvatn fórum við í búðarleik. Næsta dag var skálaskoðun. Síðan var morgunmatur og síðan var póstaleikur. Þennan dag fórum við í marga leiki en síðan var kvöldvaka. Svo vígðumst við og fórum í næturleik. Á sunnudeginum fórum við heim.

Blómadísir

Við fórum af stað á föstudeginum 21.okt. Þegar við komum fengum við herbergi og svo fórum við í söluleikinn. Eftir það fengum við kvöldkaffi og fórum síðan að sofa. Morguninn eftir borðuðum við morgunmar og fórum síðan í póstaleik og gerðum margt annað. Á laugardaginn um kvöldið fórum við í næturleikinn.

Þrumudísir

Allir mæta í skátaheimilið kl. 19:30. Rútan fór klukkan 20:00. Rútan kemur á Úlfljótsvatn kl. 21:00. Fjörið byrjar !! Öllum er skipt niður í herbergi. Stelpur í DSÚ og strákar í JB. Þrumudísir fengu Birnur! (BESTA HERBERGIÐ). Við komum okkur fyrir, klæddum okkur í hlý föt og fórum út í söluleik. Síðan var kvöldkaffi. Kyrrð klukkan 23:30 og þá eru allar Þrumudísir sofnaðar. Morguninn eftir vakna nokkrar í Þrumudísum klukkan 6:30 og byrja að naglalakka sig. Síðan borða allar morgunmat. Fyrir hádegi fórum við í póstaleik (og rústuðum honum svo feitt). Eftir hádegi var val. Flestar Þrumudísir völdu hikebrauð eða frjálst úti. Eftir kaffi var frjálst og í þeim frjálsa tíma máluðum við okkur fyrir kvöldvökuna sem var seinna um kvöldið. Eftir kvöldmat var kvöldvaka þar sem fálkaskátar vígðust. Eftir hana var næturleikur sem var rosalega skemmtilegur. Síðan fóru allir að sofa. Morguninn eftir pökkuðu allir niður að vatni og fóru í leiki. Þegar stelpurnar voru búnar að vinna alla leikina löbbuðum við upp að JB og fengum pizzu. Síðan var útilegunni slitið og allir fóru heim með rútunni. Mætt var í skátaheimilið klukkan þrjú og þreyttir skátar fórum heim með mömmu og pabba.

Álfadísir

Þessi saga er um það þegar næstum allir fálkaskátarnir í Kópum fóru á Úlfljótsvatn helgina 21. – 23. okt. 2011. Við mættum á staðinn kl. 21-21:30. Þegar við komum á staðinn gengum við frá dótinu í herbergin og síðan fórum við í búðarleikinn og eftir það í kvöldkaffi. Það var ræs kl. 8:00 og síðan fórum við í morgunleikfimi og morgunmat. Póstaleikur alveg þangað til á hádegi. Síðan fórum við að grilla brauð eða klifra í turninum. Þegar við vorum búin að gera þetta gengum við upp að krossinum á Úlfljótsvatnsfelli. Þegar því var lokið þá var frjáls tími í 3 tíma. Eftir kvöldmat fórum við í fjársjóðsleikinn og svo í kvöldkaffi. Það var ræs kl. 9:00 morguninn eftir og morgunleikfimi. Síðan fórum við í fánaleikinn og nornina, álfinn og tröllið. Eftir það fórum við að undirbúa okkur til heimferðar og fórum að slíta mótið og fórum síðan heim.