Þú ert hér: Forsíða Forsíða Allar fréttir Skátafélag á réttri leið

Skátafélag á réttri leið

Featured
Miðvikudagur, 12. október 2011 18:50


Þann 5.október síðastliðinn tók skátafélagið Kópar við gæðaviðurkenningunni Skátafélag á réttri leið frá stjórn Bandalags íslenskra skáta.

Gæðaviðurkenningin felur í sér að félagið hefur unnið og framkvæmt gæðamat á skipulagi félagsins, starfi félagsins, fjármálastjórn, fræðslumálum, menntun skáta, sett sér stefnu í friðar,-umhverfis og forvarnamálum og aukið samstarf við heimili og önnur skátafélög.

Skátafélagið Kópar fengu góða gesti til sín af þessu tilefni frá Bandalagi íslenskra skáta og bæjarstjórn Kópavogs