Forsetamerkið var afhent núna um seinustu helgi. Að þessu sinni voru tveir Kópar sem fengu þessa viðurkenningu, þau Heiða Hrönn Másdóttir og Trggvi Bragason.
Forsetamerkið er staðfesting á því að skátinn hafi lokið þjálfun í skátahreyfingunni og með starfi sínu talist þess verður að hljóta viðurkenninguna.
Forsetamerkið er afhent einu sinni á ári í Bessastaðakirkju af forseta Íslands sem er verndari Skátahreyfingarinnar.
Við óskum Heiðu Hrönn og Tryggva til hamingju með þennan árangur!
