Helgina 3. – 5. Febrúar ætlar Skátafélagið Kópar í félagsútilegu. Að þessu sinni verður farið á Úlfljótsvatn.
Að sjálfsögðu reynum við að halda kostnaðinum í lágmarki en hann er 7.500 kr. 2.500 kr afsláttur er fyrir þá sem hafa borgað félagsgjöld. Innifalið í því er rúta, gisting, allur matur og dagskrá. Skráning fer fram hér og þurfa allir að vera búnir að skrá sig síðasta lagi fimmtudaginn 2. febrúar. Skráning getur aðeins farið fram hafi skátinn verið búinn að skrá sig í félagið á netinu sem er gert hér. Aðeins er hægt er greiða með pening niðrí skátaheimilinu en einnig er hægt að leggja inná reikning skátafélagsins
Rkn. 1135-05-751030
Kt. 700371-2719
Mæting er í skátaheimilið kl 19:30 föstudaginn 3. Febrúar, þar verða allir að ganga frá greiðslum og skila inn leyfisbréfi (sem er hérna fyrir neðan). Einnig má millifæra greiðsluna fyrirfram og koma þá með útprentaða kvittun á föstudegi.
Ætlast er til að skátarnir séu búnir að borða kvöldmat. Áætluð heimkoma er um kl 15:30 á sunnudag.
Útbúnaðarlisti er hér fyrir neðan.
Allar frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kristín Kristinsdóttir 616-2255
Tinna María Halldórsdóttir 691-6130
Tryggvi Bragason 856-1861
Unnur Lilja Úlfarsdóttir 848-3536
Gísli Pétur Árnason 869-2031
Gleðilegt ár kæru Kópar.
Nú er skátastarf hafið að nýju og fundir byrjaðir. Við viljum benda þeim sem ekki hafa gert upp félagsgjöldin að klára það og svo minnum við á að skráningarfrestur á landsmót skáta 2012 er til 1. febrúar.
Hlökkum til skemtilegs skátastarfs á þessu 100 starfsári skáta á Íslandi.
Fálkaskátaútilega 21.-23. október 2011
Stelpurnar í Stjörnudísum skrifuðu ferðasögu um útileguna síðustu helgi. Hér má sjá sögur frá öllum flokkunum:
Fálkaskátaútilega Kópa
21. -23. október 2011
Farið verður í Fálkaskátaútilegu Kópa helgina 21.-23. október n.k.
Förinni er heitið á Úlfljótsvatn þar sem ætlunin er að skemmta sér saman í góðra vina hópi.
Þann 5.október síðastliðinn tók skátafélagið Kópar við gæðaviðurkenningunni Skátafélag á réttri leið frá stjórn Bandalags íslenskra skáta.
Gæðaviðurkenningin felur í sér að félagið hefur unnið og framkvæmt gæðamat á skipulagi félagsins, starfi félagsins, fjármálastjórn, fræðslumálum, menntun skáta, sett sér stefnu í friðar,-umhverfis og forvarnamálum og aukið samstarf við heimili og önnur skátafélög.
Skátafélagið Kópar fengu góða gesti til sín af þessu tilefni frá Bandalagi íslenskra skáta og bæjarstjórn Kópavogs
Forsetamerkið var afhent núna um seinustu helgi. Að þessu sinni voru tveir Kópar sem fengu þessa viðurkenningu, þau Heiða Hrönn Másdóttir og Trggvi Bragason.
Forsetamerkið er staðfesting á því að skátinn hafi lokið þjálfun í skátahreyfingunni og með starfi sínu talist þess verður að hljóta viðurkenninguna.
Forsetamerkið er afhent einu sinni á ári í Bessastaðakirkju af forseta Íslands sem er verndari Skátahreyfingarinnar.
Við óskum Heiðu Hrönn og Tryggva til hamingju með þennan árangur!
Dagsferð Drekaskáta
Nú er komið að fyrstu dagsferð Drekaskáta í Kópum á þessu starfsári.
Að þessu sinni verður farið á Árbæjarsafnið þann 23.september næstkomandi.
Mæting er klukkan 17:00 við aðalinngang safnins.
Farið verður í póstaleik að skátasið og lýkur honum klukkan 19:00.
Krakkarnir fá ekki að borða í dagsferðinni, þannig að gott væri ef allir mættu vel mettaðir.
Skráning í ferðina er hjá Magneu deildarforingja á póstfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 846-2129
Vonumst til að sjá sem flesta!
Með skátakveðju!
Skráning er hafin í skátana fyrir veturinn 2011-2012
Hægt er að skrá nýja skáta hér:
https://secure.skatar.is/felagatal/register.aspx
Eldri skátar þurfa að endurskrá sig og er það líka gert í gegnum slóðina hér að ofan.
Allir krakkar sem eru 8 ára og eldri eru hvattir til þess að skrá sig! :)
Upplýsingar um fundartíma sveita má finna hér: http://www.kopar.is/sveitir
03. febrúar 19:30 - 05. febrúar
15:30
Félagsútilega Vor 2012
Opið: Mánudaga til Fimmtudaga 17 - 19
Sími: 554-4611