Þú ert hér: Forsíða
Fréttir

Vöfflukaffi Kópa á sumardaginn fyrsta

Mánudagur, 16. apríl 2012 17:17

 

Nú líður senn að sumardeginum fyrsta sem er fimmtudaginn 19.apríl næstkomandi.

Að þessu sinni munu skátar í Kópum verða með vöfflukaffi gegn vægu gjaldi í skátaheimilinu
frá klukkan 15:00

Við hvetjum alla til þess að fagna með okkur sumrinum hér í skátaheimilinu og fá sér heitt kaffi og vöfflur!

Vonumst til þess að sjá sem flesta
Með sumarkveðju!


 

Sumardagurinn fyrsti

Miðvikudagur, 11. apríl 2012 18:02

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti er í næstu viku, eða þann 19 apríl næstkomandi. Sá dagur hefur í áraraðir verið haldinn hátíðlegur af skátum í landinu.

Dagurinn hefst með skátamessu í Kópavogskirkju kl: 11:00.
Allir skátar og foreldrar eru hvattir til að mæta í Kópavogskirkju (að sjálfsögðu í skátabúning) og eiga hátíðlega skátastund saman.

Skátar leiða síðan skrúðgöngu frá Digraneskirkju að íþróttahúsinu Fífunni.
Skrúðgangan hefst klukkan 13:30 (Gott að mæta 15.mín áður).
Dagskrá verður í Fífunni frá 14:00-16:00

Við hvetjum alla skáta til þess að taka virkan þátt í þessum skátadegi

Gleðilegt sumar!

 

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir

skraningarhnappurstorhvitt

Á döfinni

02. júní 12:00 - 03. júní 18:00
Drekaskátamót

Ný heimasíða

Tökum á móti ábendingum, hugmyndum, fréttum og myndum á heimasida@kopar.is