1. grein
Nafn félagsins er Skátafélagið Kópar og aðsetur þess er í Kópavogi.
2. grein
Félagið er aðili að Bandalagi Íslenskra Skáta (BÍS) og ber að starf eftir lögum þess og reglum.
3. grein
Markmið og tilgangur félagsins er að stuðla að aukinni hæfni manna til að koma út í lífið og gerast hæfir þjóðfélagsþegnar, með því að ávaxta þá hæfileika er þeir nutu ívöggugjöf, þroska einstaklinginn til þess að vera ákveðinn persóna, þroska félagsanda, þroska með sjálfum sér hugrekki, ósérhlífni, drengskap, sjálfsstjórn og aga, mannkærleik, efla andlega og líkamlega hreysti og hafa heilbrigða og jákvæða hugsun.
4. grein
Enginn telst fullgildur félagi nema hann hafi greitt gjald á auglýstum innritunartíma.
Félagsráðsfundur að hausti ákveður árgjald hverju sinni. Systkinaafsláttur skal vera 10% Félagar 18 ára og eldri greiða ekki félagsgjöld.
Félagsstjórn er skylt að halda spjaldskrá yfir hvern fullgildan félaga.
5. grein
Félögum ber að halda einkennisbúningum sínum vel við. Allir skulu sækja fundi og æfingar nema forföll hamli, skal þá tilkynna þau og greina ástæðu er foringi metur hverju sinni. Félagsstjórn er heimilt að beita brottvísun í samráði við sveitaforingja.
6. grein
Aðalfundur skal haldinn eigi síður en í marslok ár hvert.
7. grein
Verkefni aðalfundar eru :
1. Skýrsla stjórnar
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
3. Lagabreytingar
4. Kosningar
5. Önnur mál
8. grein
Rétt til setu á aðalfundi hafa flokksforingjar, æðri foringjar, embættismenn félagsins og skátar 15 ára og eldri.
9. grein
Kosningarrétt á aðalfundi hafa æðri foringjar, embættismenn félagsins og skátar 15 ára og eldri.
10. grein
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi og því aðeina að 2/3 hlutar fundarmanna sem atkvæði greiða, greiði atkvæði með breytingartillögunni.Tillögur til breytinga á lögum félagsins skulu hafa borist til stjórnar félagsins skriflega, 10 dögum fyrir aðalfund og skulu þær síðan liggja frammi í skátaheimilinu síðustu viku fyrir aðalfund og á aðalfundi.
11. grein
Framboð skulu hafa borist til uppstillingarnefndar viku fyrir aðalfund. Frambjóðendur í stjórn, húsnefnd og skálastjórn skulu kynna stefnumál sín á aðalfundi eftir því sem hægt er. Sjálfkjörnir frambjóðendur eru ekki undanþegnir.
12. grein
Stjórnfélagsins skipa: Félagsforingi, aðstoðar félagsforingi og 5 meðstjórnendur sem skipa með sér verkum sem ritari (færir fundargerðir stjórnar og félagsráðs), gjaldkeri (sér um fjársýslu og bókhald félagsins), umsjónarmaður skátaskála (sérum viðhald og rekstur skátaskála og fer fyrir skálanefnd), umsjónarmaður skátastarfs (er tengiliður deildar og sveitaforingja við stjórn og sér um minni viðburði félagsins) og meðstjórnandi (fulltrúi yngri kynslóða). Kosið skal til stjórnar til tveggja ára í senn og á eftirfarandi máta: Félagsforingja og 2 meðstjórnendur á sléttu ártali, aðstoðar félagsforingja og 3 meðstjórnendur á oddatölu ártali.
13. grein
Félagsráðskipa: Stjórn félagsins, deildarforingjar, sveitarforingjar, formenn allra nefnda innan félagsins og fulltrúi HSSK. Félagsráð heldur fundi einu sinni í mánuði, yfir sumarið eftir þörfum.
14. grein
Lögrétta: Hlutverk hennar er að fjalla um brot á lögum félagsins, taka fyrir agabrot,leysa deilumál sem upp kunna að koma og koma í veg fyrir hvers konar óskátalega hegðun eða starfsemi innan félagsins.
Lögréttaskal vera sjálfstæður rannsóknaraðili og getur tekið fyrir mál án þess að formleg ákæra hafi borist.
Sé um brottvikningu að ræða úr félaginu á vegum Lögréttu skal hún tilkynna félagsráði ákvörðun sína áður en formleg brottvikning er ákveðin.
Í Lögréttu sitja þrír aðilar kosnir á aðalfundi og kosnir skulu tveir varamenn. Lögrétta skal færa gerðarbók og birta alla dóma sína strax að úrskurði loknum, nema þegar um brottvikningu er að ræða. Lögrétta setur sér sjálf starfsreglur.
15. grein
Hætti einhver embættismaður á miðju kjörtímabili skal stjórn finna annan mann í hans stað fram að næsta aðalfundi með samþykki félagsráðs.
16. grein
Leggist starfsemi félagsins niður skulu sjóðir þess og eignir fara í vörslu BÍS.
17. grein
Félagsráð túlkar þessi lög. Ef um ágreining er að ræða skulu félagsforingi og Lögréttaskera úr um hann.
Lög þessi voru samþykktá aðalfundi félagsins 2009. Eru þar með öll eldri lög félagsins fallin úrgildi.

