Þótt rokið rembist við
að raula að fornum sið
þá kátir kópar skemmta sér
í kofa sem að nafnið ber
Þristur þar er fjör
og þúsund bros á vör
hljóma tugir tónar þar
og töfra urturnar.
Þar ríkir andinn einn
alltaf ferskur hreinn
skátalög og skátaheit
þar skapa góða djarfa sveit
styðjum hönd í hönd
að hnýta skátabönd
starfið treysta allir á
að efla Kópavog HEI!

