Félagsútilega Kópa

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Skátafélagið Kópar ætlar að fara í sína árlegu félagsútilegu helgina 3. – 5. Október.

Farið verður í Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni.

Brottför verður á föstudeginum 3. október frá skátaheimilinu klukkan 19:30 stundvíslega og er mæting ekki seinna en 19:00. Þá þurfa allir að vera búnir að borða kvöldmat.

Áætlað er að koma til baka í skátaheimilið klukkan 15:00 á sunnudeginum 5. október. 

Kostnaður við ferðina er 6000 krónur og er allt innifalið í því, rúta, gisting og matur alla helgina. Það er því mikilvægt að allir skrái sig í ferðina og greiði 2000 króna staðfestingargjald og skili leyfisbréfi ekki seinna en miðvikudaginn 1. október. 

 

Allar frekari upplýsingar veita starfsmaður og deildarforingjar á opnunartíma skátaheimilisins í síma 5544611 eða á tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.