Þú ert hér: Forsíða Félagið Fréttir af gömlu síðu Stjörnudísir 7. bekkur í útilegu

7. bekkur í útilegu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Helgina 16. - 18. mars 2007 fór 7.bekkur úr Hattíföttum í skátaútilegu upp í Hvell.

Farið var með strætó frá skátaheimilinu á föstudeginum og gengið niður að Hvell um kvöldið.
Helgin gekk frábærlega og skemmtu stelpurnar sér konunglega, farið var í göngutúr, búið til snjókarla, gert vinabönd og spilað. Einnig voru lesnar sögur eins og ,,Djákninn á Myrká" og allskyns ævintýralegar frásagnir sagðar.

Á sunnudeginum var svo heimför en við tókum strætó niður í Skátaheimili og slitum svo útilegunni.

 

Rakel og Tinna vilja þakka öllum kærlega fyrir helgina.

IMG_0097IMG_0063