14.10.09 – Óvissuferð. Mæting klukkan hálf 8.
16-18.10.09 – Smiðjudagar
21.10.09 – HSSK Anna Guðný sér um. 66 og ofsavondur í H&M
30 – 1.10.09 Saman
4.11.09 – Hjólatúr í vesturbæjarísbúðina í vesturbænum.
07.11.09 – Kristín K fær bílpróf !!!!
11.11.09 – Helgarfell
18.11.09 – HSSK
25.11.09 – Skíðaferð í Ártúnsbrekkuna
02.12.09 – baka piparkökur
09.12.09 – Jólaföndur


Síðasti viðburður ársins hjá Kópum var jólakvölvaka sem haldin var þann 16. desember. Góð mæting var hjá öllum sveitum og einnig mættu margir foreldrar. Greinilegt er að Kópar eru strax búnir að sprengja utan af sér húsnæðið því setið var nánast út að dyrum. Magnea deildarforingi Drekaskáta var sæmd Hetjudáðamerki Bandalags íslenskra skáta fyrir að bjarga lífi föðurs síns nú í sumar. Búið var að efna til piparkökuhúsakeppni og voru sigurvegararnir nokkrar stelpur úr Hattíföttum auk eins drengs úr drekaskátum. Þau gerðu glæsilega eftirmynd að Þrist skátaskálanum okkar. Myndir eru komnar á netið.
Nú eru upplýsingar um fjáröflun fyrir Blair Atholl 2010 aðgengilegar í hægri dálk síðunnar.
Nýársútilega Kópa verður haldin þann 1. – 4. janúar í skátaskálanum Þristi.